Viðskiptahugmynd2
23.10.2008 | 09:53
Staður: Alcoa- Suðurlandsbraut
Stund: Nú rétt í þessu
Ég gekk um gólf hér fyrir hálftíma vegna óstjórnlegrar sykurlöngunar. Fimm mínútum síðar kemur annar félagi inn, vopnaður vínarbrauðslegju. Þeinks god, þeinks god- morgninum bjargað...
Morgunkaffisamræður í eldhúskrók:
Starfsmaður1: "Krissa, hvaða búð er verið að opna hérna niðri, í plássinu sem Edda útgáfa var?"
Ég: "Sýnist það vera svona heilsu-eitthvað. Lífrænt ræktaðar baunir og safar, svona annað Maður lifandi fyrirtæki."
Starfsmaður2: "Hvernig væri að stofna Maður deyjandi fyrirtæki? Selja steiktar kótilettur, löðrandi í smjörlíki?"
...já, það er spurning. Allavega viðskiptahugmynd...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Að ferðast aftur í tímann, það er ekkert mál!
22.10.2008 | 12:57
Hugur manns er magnað fyrirbæri. Engin þörf er fyrir tímavél eða aðra tækni. Nóg er að finna lykt, heyra lag eða fara í ákveðnar aðstæður þá kallar það fram ákveðnar minningar, góðar eða slæmar. Heimsótti góðan fjölskylduvin á Borgarsjúkrahúsið í gær. Þegar ég var að hringsóla á planinu eftir stað til þess að leggja áttaði ég mig á því að ég hef aldrei komið þangað eftir andlát pabba árið 2000, en þá var ég þar daglegur gestur í heilan mánuð...
Þegar ég kom svo inn í anddyrið og upp í afgreiðsluna skipti engum togum með það að ég skutlaðist átta ár aftur í tímann. Fannst ég stödd þarna 24 ára. Upplifði hrollinn, hnútinn í maganum, kvíðann eftir framhaldinu- allt á einu sekúndubroti. Magnað...
En þrátt fyrir það var gott að hitta Jónu og Höllu, já og auðvitað kyssa Kjartan á ennið og hvísla að honum að standa sig eins og hetja, alveg eins og ég gerði alltaf við pabba. Verð að skjóta myndinni af þeim vinunum, pabba og Kjartani ásamt þeirra heittelskuðu, mömmu og Jónu aftur hér inn...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Af fiskibollum og snjóstormi
20.10.2008 | 00:41
Enn ein helgin liðin. Þær þjóta hjá blessaðar. Til allrar lukku þykir mér einstaklega gaman í vinnunni þannig að mér líkar einnig vel við mánudagsmorgna! Set hér inn helgina í myndformi...
Brunuðum á Stöddann þar sem amma Jóna var búin að landa 6 kílóum af þorski í bollugerð, dugleg kerlan! En við byrjuðum á því að fara í fjöruna. Vopnuð dósum og stækkunargleraugum, í von um að finna einhverjar skemmtilegar pöddur...
En það var engin beinagrind í ömmu eldhúsi! Ne, hei- þar voru bara bollur í fjöllum...
En svo var voða gott að baða sig eftir átökin...
Við klesstumst líka með Nóna og co. Hanna framkvæmdi gjörning sem sló í gegn- bauð upp á bláklædd karamelluepli!
Krakkarnir notuðu veðrið til þess að fara út að leika, fyrsti snjórinn er alltaf vinsæll...
...á meðan græjuðu mæðurnar lummuboð fyrir svanga maga og rjóðar kinnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þjóðleg helgarplön...
17.10.2008 | 20:49
Var með þjóðleg- og stór plön fyrir helgina. Ætlaði, já og ætla að pakka liðinu niður í tösku og fara til mömmu. Áformaði að taka slátur, gera fiskibollur og byrja á lopaeysunni sem mig langar svo mikið í. Af þessum þremur arfa smörtu atriðum stendur aðeins eitt eftir...
...búið er að redda fiski í bollufjall en mamma talaði mig af því að gera slátur, sagði það barasta ódýrara að kaupa það ósoðið í Bónus. Ég lét segjast. Náði svo því miður ekki að spá í uppskrift af peysunni þannig að ég get ekki byrjað á henni, það er DEM!
En, semsagt, það er fiskibollugerð, fjöruferð og almennt hang og kless á helgardagskránni. Næs. Lofa að taka myndavélina með að vanda...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tásunudd í skammdeginu
15.10.2008 | 20:40
Blautur og kaldur dagur. Hrollur í manni. Náði í krakkana og við fórum beint heim og lögðumst saman og horfðum á Bubba byggir- alltaf góður. Fengum okkur kakó og höfðum það næs. Nuddaði svo tásurnar á þeim með olíu fyrir svefninn, en það þótti þeim sérdælis huggulegt...
...Þórs tásur hafa aðeins stækkað síðan á fæðingardeildinni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Partýkofi!
14.10.2008 | 20:49
Vó, það verður fjölmennt í kartöflukofanum. Frábært. Hugmynd ódýrri kvöldvöku...
- Skemmtan: Kveðskapur, húslestur úr Línu langsokk. Kannski líka leikurinn "hvað ætlaðir þú að gera við peningana sem þú tapaðir í kreppunni?" Eða nei annars...
- Veitingar: Kartöflur í öllum myndum, sláturkeppur, reyktur marhnútur, þang og grillaður máfur
Kristín Björg, Jenný Anna, Hlín og Eygló. Það er mæting á Reykjavíkurflugvelli klukkan 7 í fyrramálið. Ómar ætlar að skutlast með ykkur á Frúnni...
Hlakka til að sjá ykkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lögheimili: Kartöflukofinn á Stöðvarfirði
13.10.2008 | 22:09
Eins og margoft hefur komið fram er ég sveitalubbi að upplagi. Ólst upp á Stöðvarfirði þar sem þögnin var svo mikil að árniðurinn truflaði höfuðborgarbúa sem fengu gistingu á ferð sinni um landið. Bílaumferð var ekki mikil og hvað þá flugumferð. Man einu sinni að sumarlagi þegar Ómar Ragnarsson flaug yfir á Frúnni og ég fékk algert fælniskast, hélt það væri að skella á stríð og langaði að loka mig inn í kartöflukofanum hans pabba!
Mér líður svolíðið eins þessa dagana. Langar að fara með krakkana og loka mig inni í kartöflukofanum í brekkunni. Taka með Lúdó og allar bækurnar eftir Astrid Lindgren. Ekki hlusta á fréttir eða hvað þá síður hitta annað fólk, þar sem kreppufrítt svæði virðist ekki vera til...
Læt þessa fylgja með...
...vinkonurnar Freyja og Bríet í sveitinni í sumar. Þær eru ekki í nokkurri einustu kreppu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Köttur í leikskólahólfi?
10.10.2008 | 10:12
Staður: Forstofa Búðarmels
Stund: Í morgunsárið
Stemmning: Drama
Þór: "Vitt ekki fara í leikgólann"
Ég: "Þú ert alveg að komast í helgarfrí ástin mín, það er kósíkvöld hjá pabba og svona"
Þór: "Vitt taka gisu með í leikgólann!"
Ég: "Nei, það gengur ekki, það má ekki vera með kisur á leikskólanum"
Þór: "Jú, geym'ann bara í hovvinu mínu"
...jú, áætlað var að Sútur sæti eins og bangsi í fatahólfinu hans Þórs í allan dag. Það má kannski athuga það!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriggja ára- já takk!
9.10.2008 | 20:22
Æj. Þessa dagana væri ég helst til í að vera þriggja ára. Ekki hafa hugmynd af þessu krepputali og djöfulgangi. Í stað þess að vera að kafna í vinnu, hlusta á niðurdrepandi volæðisfréttir og borga 20.000 kall fyrir hvert skipti sem maður stígur fæti sínum inn í ,"lágvöruverslunina"- myndi ég taka þátt í morgunleikfiminni á Rás1 með ömmu Jóhönnu, vaða í pollum og erfiðasta ákvörðun dagsins væri hvort ég ætti að leika með monsur eða dúkkulísur!
...þetta erum við Gummó, æskuvinur minn sem er mér sem bróðir enn í dag. Það var ekkert vesen í þá daga, allavega ekki hjá okkur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kósíljós...
8.10.2008 | 20:27
Djöfull (afsakið orðbragðið) er ég alltaf ógeðslega ánægð með mig þegar ég er búin að gera eitthvað á heimilinu sem ég gerði aldrei meðan ég var í sambúð. Það eru svo sem engin "geimvísindi" að negla nokkra nagla, ég segi það ekki- en ég hefði örugglega ekki gert það ef ég væri enn með húsfaðir á heimilinu...
...en serían er loksins komin í gluggann og er það vel!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)