Mæðgur á leið í helgarferð...

MæðgurJá nú er komið að því! Skvísuferðinni! Bríet hefur spurt á hverjum degi í marga mánuði hvenær við förum bara tvær til Reykjavíkur. Og nú er komið að því. Það vill reyndar þannig til að eldri feðgar eru að fara suður líka en við skvísurnar ætlum sko bara að vera út af fyrir okkur í borginni. Já já, bara aleinar og ráða okkur sjálfar...

...ætlum að gera allt sem okkur langar, þegar okkur langar. Ekki neitt sem okkur langar ekki. Það á að kaupa buxur, vesti, brók og skó á þá stuttu þar sem hún vex ótæpilega þessa dagana og allt orðið "snollað"

Bestustu vinkonur í heimi hér!Aðallega á að heimsækja og leika við Elísu. Og Elísu. Og Elísu. Og Elísu- hehehe, enda mikill Elísuskortur á ferðinni!

...já og auðvitað alla hina. Endilega látið mig vita hvenær þið eruð laus í hittinga. Vöffluboð og allskyns hittinga-boð vel þegin. Tímapantanir í síma 843-7812 eða í kommentum!

Hlökkum til að sjá ykkur

Krissa & Bríet


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Át framundan, sun????

Hlín mín (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 16:00

2 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Ohhh, já! Sunnudagur hljómar afar vel fyrir át. Einstaklega...

Knús á línuna!

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 9.5.2008 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband