Gel og sprey
30.8.2008 | 21:18
Það fer ekkert milli mála að menn eru komnir í 7unda bekk...
Almar Blær: Mamma! Hvar er hárspreyið?
Ég: Uuuu, er það ekki bara þarna einhversstaðar í skápnum?
...7undi bekkingurinn kemur fram vel-dúaður...
Ég: Hvert ertu að fara ástin mín?
Almar Blær: Á völlinn
...sá að ég gat ekki bælt brosið og sagði
Almar Blær: Maður verður nú að nota þetta fyrst maður á þetta!
Jú mikil ósköp. Ekki borgar sig að láta gelið og spreyið renna út!
Athugasemdir
Veistu ég held ekki. Strákarnir í þessum bekk virðast hafa mun meira fyrir "lúkki" dagsins heldur en stelpurnar. Já- þú meinar það, jú kannski til þess að heilla stúlkurnar upp úr skónum...
Annars fara bekkirnir ansi hratt stækkandi hérna megin- í hans bekk eru 18 nemendur, einnig í fyrsta bekk hjá Bríeti minni og í 2005 árgangnum sem Þrumuguðinn er í verða 24! Já, þetta er að verða Melaskólastærð...
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 31.8.2008 kl. 20:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.