Uppástunga að viðskiptahugmynd...
10.7.2008 | 08:21
Jæja! Ég er með hugmynd fyrir einhvern framtaksaman og drífandi einstakling. Hugmyndin gengur út á að flytja inn sumar! Danskt, frankst, spænskt- hvað sem er! jesús minn hvað ég er orðin leið á þessu. Það eru nú alveg takmörk fyrir því hvað maður getur lifað lengi á þessum fjórum góðviðris dögum þarna í maí! Svei attan! Braut uppáhaldssólgleraugun mín um daginn. Grét nánast yfir því, en hef ekki þurft að hafa áhyggjur af því síðan- hér hefur frekar þurft þokuljós!
...væri ekki amalegt að geta farið að nota þessi, rétt sem og á hvolfi!
Athugasemdir
Ég skal reyna að koma með sumarið með mér væna
Hlín mín (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 08:41
Í guðanna lifandis bænum barn- troddu því niður!
Hlakka til að knúsa ykkur á eftir...
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 10.7.2008 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.