Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Egg í lögguna!
28.1.2009 | 17:52
Staður: Tunga
Stund: Í gær
Persónur og leikendur: Þór, playmo-prins og playmo-lögga
"Nú hendir minns eggjum í lögguna, hah, ha!"
...úff. Svo gera börn sem fyrir þeim er haft. Gott meðan playmo-prinsar beita ekki táragasi, segi nú ekki meir!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fyrra gelgjustigið?
25.1.2009 | 22:25
Mæ, ó mæ!
Óttast að Bríet sé komin á fyrri gelgjuna- sé það til. Í það minnsta syngur hún hástöfum með þessu hér, tónverki sem að 16 ára stelpur eru með í botni í herbergjum sínum. Hvaðan barnið fær þennan innblástur get ég ekki sagt því ég sver frá mér þessa tegund tónlistar, enda búin með seinni gelgjuna...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hark og hörmungar
15.1.2009 | 18:04
Ó mæ god! Stundum líður mér eins og ég sé stödd í falinni myndavél. Eða einhverri lélegri mynd þar sem ég er djókið. Sumir dagar eru súrari en aðrir. Yfirleitt er gaman í vinnunni en stundum ekki. Í dag var einn af síðari sortinni. Í fyrsta lagi var ég sein af stað í morgun og það fer alveg með mig, mér finnst það ferlega óþægilegt, enda steingeit þið skiljið...
Ofan á það kom rigning ofan í 27 metra jafnfallna snjóinn sem lagðist yfir Reyðarfjörð á dögunum þannig að massa krapi liggur yfir öllu saman. Viðbjóður. Ekki nóg með að verða rennandi blaut við að sækja úrill börnin mín þá festi ég bílinn fyrir utan leikskólann...
Þór tók svo æðiskast í búðinni svona til þess að kóróna allt saman, þannig að við fengum ALLA athyglina í Krónunni, gaman, gaman! Druslaði öllum vælandi, grenjandi og rennandi blautum í bílinn, plús vörunum sem kostuðu 5000 kall þó svo ég væri ekki að kaupa neitt! Óþolandi!
Endaði svo á því að festa bílinn aftur í götunni, skál í botn í boðinu!
Kom svo heim og íbúðin lítur út eins og Gasa-svæðið, ji minn einasti! Verð að fara að taka á umgengni barna minna, það er á hreinu! Er að spá í að leggjast á gólfið og orga, svona eins og Þór þegar hann er í óstuði. Ætla samt að enda þennan sjúklega boríng pistil á myndum frá því í laxveiðinni okkar í sumar, með Jóa bróður í Breiðdalsánni...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sælan á enda...
7.1.2009 | 20:24
Þá er komið að þessu árlega, þið vitið...
...júbb, heilsuátakinu! Fer nú að verða pínu þreyttur þessi brandari. Allir byrja af meiri krafti en sterkasti maður heims og skíta svo upp á bak þremur vikum seinna! Allavega ég...
En nú er búið að skora á kerlu, já og allt teymið mitt í vinnunni. Þar er að hefjast heilsuátak mikið með liðakeppnum og Guð einn má vita hvað! Heilsulúðarnir skoruðu semsagt á mannauðinn og eiga vonandi eftir að sjá eftir því endalaust!
Þurfum öll í heilsumælingu fyrir átak. Héldum að það væri blásaklaust! En. Einn hefur farið í klefann út okkar herbúðum og kom að niðurlotum kominn og nánast óstarfhæfur til baka. Það er kannski ástæða fyrir því, eini karlinn í hópnum...
En á morgun er stóri dómurinn. Mæling á mælingu ofan- jakk...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jeppafrúin Bríet
5.1.2009 | 22:14
Mæðgur á eintali, já eða tvítali kannski...
Bríet: Ég ætla að fá mér jeppa þegar ég verð stór
Ég: Nú
Bríet: Já, með Ragnari manninum mínum
Ég: Nú- ætlar þú að giftast Ragnari? Veit hann af því?
Bríet: Nei, ekki enn...
...nei, nei, það er nægur tíminn fyrir Ragnar frænda að komast að því!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)