Þokkalegur kokkur!
24.11.2009 | 20:19
Tel mig nú bara vera ágætiskokk alveg hreint. Í heiminum ríkir ekki samhljómur og meira að segja ekki innan heimilisins...
Þór; Mamma. Hvenær ætlar þú eiginlega að gera svona töflu eins og er í leikskólanum?
Ég; Hvernig tafla er það?
Þór; Æji, svona matartafla. Þar sem kennarinn krossar við hvort börnin borða þokkalega eða vel
Ég; Ég held að það kæmi nú ekkert sérstaklega vel út fyrir þig ástin mín, þú ert nú ekkert rosalega duglegur að borða matinn þinn í kvöldmatnum, þó svo að þú borðir alltaf vel í leikskólanum
Þór; Það er bara af því að þú eldar ekki eins góðan mat og matráðskonan í leikskólanum!
...noh!
Athugasemdir
Góður gæi .... ha ha ha
Lára B. Björnsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 10:51
Ái....
Hlín mín (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 10:24
Já hvernig finnst þér Hlínsa? Þú hefur nú verið í mat í Tungu og veist'ann er bara að bulla...
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 26.11.2009 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.