Komin í hjúkkugallann...
29.10.2008 | 23:06
Grunaði ekki Gvend. Búðarmelurinn að breytast í sýklabæli. Hitapúkinn leysti fröken magapínu af, en unglingurinn liggur nú með lúgin og sjóðheit bein í bæli sínu. Ekki nema vika síðan hann var með svo mikla ælu að í eitt skiptið náði ég ekki að skutla mér eftir fötunni, aðeins kattasandskassanum!
Þrumuguðinn hóstar eins og hann fái 5000 kall fyrir hvern almennilegan hósta. Alveg greit! Í takt við allt saman...
Almar Blær: "Manstu þegar það var alltaf verið að tuða- og búa mann undir heimsendi? Það var bara undirbúningur fyrir þetta allt. Landendi!"
Já, menn eru þenkjandi þó aðeins 12 ára séu! Ætlaði að leysa ykkur út með snjómyndum frá því í gær en Canon er með stæla og vill ekki deila myndum. Hún er kannski líka með byrjandi flensu!
Athugasemdir
Fussumsvei, ég vona að öllum batni fljótt og þetta verði ekki 10 daga lega eins og hjá Eyglónni. Knús
Hlín mín (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 08:57
Ossossoss..legg ekki meira á þig góða. Knús og bati í hús.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 21:16
Innlitskvitt Vonandi hressist mannskapurinn fljótt.
Solveig Friðriksdóttir, 31.10.2008 kl. 09:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.