Ekki avve dibúinn!
7.7.2008 | 23:27
Stína: Jæja Þór. Ertu kominn í sumarfrí á leikskólanum?
Þór: (rogginn með sig) Já! O hættu me bleyju!
Stína: Núh! Ertu hættur með bleyju (vissi að um ósannindi var að ræða þar sem enn var látið gossa í Pampers í gær)
Þór: Nei. Ekki ave dibúinn!
Stína: Nei, nei, verður kannski bara hættur áður en þú ferð aftur á leikskólann, á stóru deildina
Þór: Já
...æi, hann er svo mikil lumma. Er ekki "avve dibúinn" í þetta allt saman. Örugglega erfitt að vera orðinn svona "stór" en samt svo lítill og þurfa alltaf að vera að svara til um klósettvenjur sínar, enda sýnir það sig- greinir orðið frá því óumbeðinn! En nú ætlum við að taka á því í sumarfríinu og mæta bleyjulaus og þá nánst berrössuð á deildina risastóru eftir sumarfrí. Alveg tilbúin!
Athugasemdir
Æ litla lumman er alveg flottastur...með eða án Pampers;-)
knús!!!
heyrast í dag/kvell??
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 09:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.