Þriggja ára- já takk!

 Æj. Þessa dagana væri ég helst til í að vera þriggja ára. Ekki hafa hugmynd af þessu krepputali og djöfulgangi. Í stað þess að vera að kafna í vinnu, hlusta á niðurdrepandi volæðisfréttir og borga 20.000 kall fyrir hvert skipti sem maður stígur fæti sínum inn í ,"lágvöruverslunina"- myndi ég taka þátt í morgunleikfiminni á Rás1 með ömmu Jóhönnu, vaða í pollum og erfiðasta ákvörðun dagsins væri hvort ég ætti að leika með monsur eða dúkkulísur!

Bara krútt

...þetta erum við Gummó, æskuvinur minn sem er mér sem bróðir enn í dag. Það var ekkert vesen í þá daga, allavega ekki hjá okkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar R. Jónsson

Ég hugsa þetta oft; hvað það væri ljúft að hafa engar skyldur aðrar en þær að vera til og áhyggjulaus í takt við það.

Þess vegna líka finnst mér upphafið að Fjallkirkjunni svo ógurlega fallegt:

"...þau ár þegar ljósið var í senn ljós og sigursælt ljós og allt myrkur og allan ótta mátti særa burt með einu faðirvori eða signingu; þau ár þegar ég grillti ekki kvöldið á morgnana og sat öruggur í skjóli undir grasi grónum moldarvegg og lék mér að stráum; þau ár eru liðin og koma aldrei aftur."

Bið að heilsa öllum í "sveitinni"!

Gunnar R. Jónsson, 10.10.2008 kl. 23:42

2 identicon

Þessi mynd er of svöl;) held það sé kominn tími á re-photoset við fyrsta tækifæri ... Efast samt um að við finnum þennann þvílíka kagga fyrir aftan aftur, en við finnum bara einhvern annann í staðin;)

 Kveðja, your "bro" Gummó:)

Gummó (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband