Svo kósí...

Finnst haustið liggja í loftinu. Fékk nostalgíukast þegar ég fór út í morgun og var að fara í vinnu. Þrátt fyrir að það sé þokkalegur lofthiti þá var eitthvað svo haustlegt. Það var kalt, sól og bærðist ekki hár á höfði, svona ekta veður eins og þegar maður var að labba í skólann fyrstu dagana á haustin...

Finnst voða kósí að lífið sé aftur að detta í rútínu eftir sumarfríið. Haustin eru minn uppáhaldstími. Þór er byrjaður í leikskólanum og Bríet byrjar í skólanum eftir viku, vopnuð spánýrri skólatösku. Almar Blær flaug suður í dag til þess að horfa á einhvern stórleik á Laugardalsvellinum, já þetta er aldeilis orðið fullorðið...

Krakkarnir verða hjá mér aðra vikuna og pabba sínum hina. Þetta verður einstaklega undarlegt í byrjun, já og örugglega alltaf. Hef samt ákveðið að troða mér í Pollíönnukjólinn og hugsa þetta jákvætt og gera þá bara eitthvað fyrir sjálfa mig vikuna sem ég verð ekki með þau...

En allavega, það er komin kertatími- njótum þess!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Oh ég hlakka svo til haustsins.  Það er eitthvað crispy í loftinu, eitthvað svo haustlegt og fínt.  Upp með kertin.  Here we come.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.8.2008 kl. 16:18

2 identicon

Risastort og feitt knus fra Frakklandi. Hef hugann itrekad vid ykkur eystra, thad mattu vita!

Elsa (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 16:31

3 identicon

Mundu bara að slökkva á kertunum svo nýji kofinn fuðri ekki upp. VÆNA.  Knús.

Hlín mín (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 10:23

4 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Já það er víst betra VÆNA! Annars er það lítil hætta, var svo geðveikt eldhrædd sem barn að það þurfti nánast að kalla út slökkviliðið á hverju kvöldi til þess að athuga hvort ekki væri búið að taka allt úr sambandi til þess að ég gæti sofnað vegna paranoju!

En- guð hvað ég vildi hafa þig hérna akkúrat núna, segi ekki meir!

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 15.8.2008 kl. 12:10

5 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Elsku dúllan - eruð þið skilin?

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 15.8.2008 kl. 13:30

6 identicon

ÆÆII já ég líka.  Síminn minn er allaf opinn. Heyrumst  í kvella, ég tóla allavega.

Hlín mín (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 14:15

7 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

kvitt

Einar Bragi Bragason., 16.8.2008 kl. 01:42

8 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Techy

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 16.8.2008 kl. 18:00

9 identicon

Halló skvís. Ég reyndi að hringja í gsm-símann þinn áðan en fékk talhólf. Ertu ekki með sama símanúmer?

Stórt knús, Magga

Magga (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 20:13

10 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Æi Magga mín

Nei nei, ég er ekki með sama númer, þetta er núna númer únglíngsins! Hann hefur sem sagt ekki svarað þér! Ég er með vinnusímanúmer...

Knús

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 16.8.2008 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband