Sexý? Iiii, nei- frekar eins og Andrésína...

Ég þarfnast aðstoðar. Líður svipað og þegar maður er að reyna að muna eitthvað, nafn á lagi, manneskju eða einhverju öðru og það bara kemur ekki. Maður verður voða pirraður og hættir ekki fyrr en það er komið...

Þetta er ekki þess eðlis, snýst ekki um að ég muni ekki eitthvað- frekar að ég skilji allllllllls ekki! Sem sagt, getur einhver- bara einhver sagt mér af hverju gengjukynslóðin og einstaka stúlkur yfir tvítugu eru alltaf með stút á vörum á öllum myndatökum. Er það:

  • Sexý?
  • Flott?
  • Almennt hot?
  • Allt ofangreint?

Það bara getur ekki annað verið! Missti ég af einhverju? Hvað er þetta? Að skoða myndir á því merka samfélagi "fésbókinni" - þá virðist hreinlega bannað að láta þar inn mynd af þessum aldursflokki án þess að vera eins og önd í framan. Plís, viljið upplýsa mig, ráða gátuna svo ég geti farið að hugsa um eitthvað annað!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

akkúrat eins og þú segir sjálf "SVIÐSETT"

petrea (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 18:47

2 identicon

blessuð maður, ég veit eins og með mig.. þá er þetta einskona "hide" svipur, ég þoli ekki brosið mitt og ég þoli ekki myndavél haha.. þessvegna kemur upp stútur hjá mér..

Þórdís Arna (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 20:03

3 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Kei, ókei- ég er að læra. Þórdís krútt, það eru fáir með eins dásamlega fallegt bros og þú, finnst þú miklu sætari þannig heldur...

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 3.2.2009 kl. 20:05

4 identicon

Guð minn! Hef mikið pælt í þessu og þú komst nú eiginlega með svarið Andrésína!! Verð að spurja fósturdætur mínar að þessu Kveðja Gamlan á mánagötunni

Þórstína Hlín Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 20:11

5 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Held að allflestir á Mánagötunni geti svarað þér...

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 3.2.2009 kl. 20:13

6 identicon

Hahaha.. já takk fyrir, nei ég tildæmis verð alltaf að gera stút svo horfi ég alltaf upp með augunum.. þetta kemur bara upp sjálfkrafa haha
kíkkaðu bara á þessa mynd =
http://www.facebook.com/home.php?ref=home#/photo.php?pid=1743398&op=1&o=global&view=global&subj=555752817&id=613105307

Dísa (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 20:13

7 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Já, þetta er bjútilúkkið sem Erla frænka talar um á "fésbókinni"- klárlega, klárlega!

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 3.2.2009 kl. 20:22

8 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Hún Anna mín - á 16. ári - lítur ekki svo í spegill að hún búi ekki til stút - dáldið fyndið!

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 4.2.2009 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband