Þriggja ára þrumuguð

Get ég hætt við...Glænýr... Stoltur stóri bróðir í annað sinnPínuponsNokkurra klukkustunda gamallPínulítil stóra sysDásamlegFallegustHeiðgulur þrumuguðEr til eitthvað sætara?Hálfsmánaða en hárgreiðslan á hreinuPrinzÞrumuguðinn Þór

Upp er runninn 1. september. Í þriðja sinn- ef tímatalið hófst eftir fæðingu þrumuguðsins Þórs. Hann á afmæli í dag, litli gullmolinn minn. Ég get ekki ákveðið mig hvort mér þykir stutt eða langt síðan sami mánaðardagur rann upp þegar ártalið sýndi 2005. Kannski langt af því mikið hefur gerst í lífi okkar allra á þessum tíma. Að sama skapi stutt af því ég man þetta allt eins og það hafi gerst í gær...

Ég er að spá í að bjóða ykkur í örstutt ferðalag- aftur til ársins 2005...

Þar sem ég gekk nú með mitt síðasta barn- samkvæmt öllum áætlanagerðum tók ég þá ákvörðun að fara í svokallaða "bumbu-myndatöku". Um er að ræða myndatöku hjá ljósmyndara sem fangar "ástandið" á filmu á faglegan hátt. Mér þykja óléttar konur fallegasti þjóðfélagshópurinn og þess utan líður mér aldrei betur en í þessa níu mánuði sem ég er með laumufarþega innvortis. Nema hvað. ég hringi og pantaði tökuna. Pantaði hana í tíma-  líklega í júlí og í samráði við ljósmyndara ákváðum við að hafa vaðið fyrir neðan okkur og vera tímalega- en þó að ég væri nánast kasólétt. Já, 1. september var fínn dagur fyrir myndatöku, enda snáðinn ekki væntanlegur í heiminn fyrr en 26. september. Flott plan...

Mér líður undursamlega meðan á meðgöngu stendur. Alltaf. Í þessa 27 mánuði sem ég hef gengið með börnin mín hefur mér ekki orðið óglatt einn einasta dag. Ekki fundið fyrir grindarveseni, þreytu eða öðrum kvillum. Því síður veit ég ekki hvað orðið fyrirvaraverkir merkir, en það veit ég hins vegar að ef ég fæ verk þá er ég að fara að eiga barn, og það fljótlega!

Þvert á móti, þá verð ég aldrei hressari en þegar verulega líður á mánuðina níu. Hættulega hress myndi barnsfaðir minn líklega segja. Hann kom oftar en ekki að mér upp á eða inn í eldhúsinnréttingunni á 39 viku- þá fann ég mig einstaklega knúna til þess að taka aðeins í gegn. Ég engist einnig af þörf til þess að baka og bjóða vinkonum mínum í kaffi og ræða heimsmálin en tvö slík voru einmitt fyrirhuguð þann 1. september...

Einhverntíman þegar á áttunda mánuð var komið hafði sú hugsun flogið í gegn um huga mér að gaman væri ef prinsinn myndi láta sjá sig 14. september því þá hefði pabbi átt afmæli. Henti hugsuninni hins vegar fljótlega út og skammaði sjálfa mig fyrir að óska mér fyrirbura til þess að ná í einhvern sérstakan afmælisdag...

Ég fór salíróleg að sofa aðfaranótt þess fyrsta. Búin að baka, græja og gera fyrir morgunkaffið. Hlakkaði til að hitta Elísabetu með Bergdísina sína sem aðeins var þriggja mánaða- já og Hlín eftir hádegið...

Í gegn um drauminn fann ég eitthvað. Hvað í andskotanum hugsaði ég með mér þegar ég vaknaði við herlegheitin. Það er tæpur mánuður í ásettan dag. Ég þekki sjálfa mig þó það vel og vissi vel að ég fæ ekki svona verki upp á grín- þeir merkja það eitt að ég verð komin með kraftaverkið í fangið innan þriggja tíma! Dem, dem, dem- BUMBUMYNDATAKAN!

...ég ákvað að vekja Sigurjón ekki strax. Rúmlega þrjú hringdi ég á Landspítalann:

Ég: Góðan daginn- já eða góða nótt frekar. Ég ákvað nú að hringja, en ég er með einhvern seiðing en er ekki nema á 36 viku

Móðir ljóssins: Eru þetta bara ekki einhverjir fyrirvaraverkir?

Ég: Veistu ég fæ aldrei svoleiðis

Móðir ljóssins: Humm. Gætir þú talað við manninn þinn í þessum verkjum?

Ég: Já já

Móðir ljóssins: Ertu búin að taka tímann? Hvað er langt á milli þessara verkja?

Ég: Svona tvær mínútur

Móðir ljóssins: Nú já. Viltu þá ekki koma og við kíkjum allavega á þig...

Ég vakti Sigurjón þegar klukkan var að nálgast fimm. Hringdum í barnapíuna en sögðum henni að við yrðum líklega komin aftur heim áður en langt um liði, kannski bara áður en krakkarnir færu af stað út í daginn...

Það er svo mögnuð upplifun að eignast barn. Því er ekki hægt ða lýsa fyrir þeim sem ekki hafa upplifað. Dagurinn var bjartur og fagur. Septembermorgun milli klukkan sex og sjö. Man alltaf þegar við keyrðum Miklubrautina og fram hjá manni sem var úti að skokka. Man ég hugsaði: "Bíddu, bíddu- er maðurinn úti að skokka! Bara sí svona og ég er að fara að eiga barn!" Manni finnst heimurinn snúast algerlega um sig og það væntanlega- að öðrum detti hversdagslegar athafnir í hug á slíkum degi eins og morgunskokk- hvað er nú það?

Sú sama og ég talaði við í símann tók á móti okkur. Gaf aftur í skyn að líklega væri um gabb hjá prinsi að ræða. Einhverntíman væru fyrirvaraverkir fyrstir! Skemmst er frá því að segja að hún hætti að tala um aprílgabb þegar hún mældi útvíkkunina- "Já, hún er átta! Við hættum klárlega ekki við úr þessu!"

Fæðingin gekk hratt og vel. Að vísu kom "slæmi kaflinn" hjá mér, en ég tak hann alltaf- svona rétt eins og strákarnir okkar. Kaflinn þegar ég íhuga frekar að kasta mér út um gluggann á Lansanum í stað þess að klára dæmið...

Ég: Ég er hætt við!

Móðir ljóssins: Svona góða mín. Þú vinnur bara á móti þér. Slakaðu á í rassinum og láttu lærin síga...

...guð minn, guð minn, guð minn almáttugur. Konan hefur augljóslega aldrei átt barn. Að koma höfði á barni út úr líkama sínum er líklega eins og ef það allra heilagasta væri skorið undan karlmönnum með bitlausum flökunarhníf! Myndu þeir á meðan brosa, slaka á í rassinum og láta lærin síííííííííííííga? Ja maður spyr sig...

En í heiminn kom hann. Rétt um klukkan átta. Svarthærður og agnarsmár. Aðeins tíu merkur og 50 cm. Þrumuguðinn Þór. Bjartur og fagur- rétt eins og dagurinn hans!

Auk þess að hringja í fjölskylduna og tilkynna um prinsinn sem þjófstartaði afboðum við myndatökuna og kaffiboðin. Hringdum svo í Eygló frænku og sögðum henni að við kæmumst því miður ekki í afmæliskaffi til hennar- hvort henni væri ekki sama þar sem hún hefði fengið óvænta afmælisgjöf...

Elsku karlinn okkar. Innilega til hamingju með daginn þinn. Megi góðar vættir fylgja þér hvert skref- og þú halda áfram að fegra líf okkar allra með þinn nærveru. Endalaus ást til þín...

Þriggja ára afmælisprins!Kominn í Liverpool-gallann frá ömmu og afaFlottasti hópurinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Til hamingju með þrumuguðinn þinn. Skemmtileg lesning .

Solveig Friðriksdóttir, 1.9.2008 kl. 07:51

2 identicon

Innilegar hamingjuóskir til litla grallarans.

Kossar og knús í allar áttir frá fjölskyldunni í Rima númer sex.

Hallan (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 09:05

3 identicon

Bestu kveðjur til afmælisbarnsins. Til hamingju með gæjann.

Lára, Svenni, Aron og Elísa

Lára B. Björnsdóttir (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 09:06

4 identicon

Til hamingju strumpinn...ótrúlegt að það séu liðin þrjú ár síðan þið ræstuð mig út í pössunina :)  Knúsaðu litla kútinn frá okkur öllum þremur.

Birgitta, Davíð og Brynjar.

Barnapían í sögunni (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 10:12

5 identicon

Til hamingju með gorminn, knúsaðu hann frá Töntu sinni, Klandra og Eygló

Hlín mín (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 11:10

6 Smámynd: Adda bloggar

innilega til hamingju elsku Þór minn.krissa mín til lukku með unga prinzinn þinn, litla-stóra.þú ert einstök------löve youuuuu.þín adda og nafni

Adda bloggar, 1.9.2008 kl. 11:42

7 Smámynd: Adda bloggar

Glitter Graphics



Adda bloggar, 1.9.2008 kl. 11:46

8 identicon

Það er orðið alltof langt síðan ég kvittaði fyrir mig síðast, en ég hef verið fastagestur hér lengi og fylgst með úr fjarlægð. Það er bara alveg magnað að lesa skrifin þín, þú segir svo skemmtilega frá.  

Innilega til hamingju með stóra prinsinn, hann er algjör gullmoli.

Kærar kveðjur að norðan

Erla Dögg

Erla Dögg Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 13:16

9 identicon

........viltu telja aftur! Ertu viss um að það séu þrjú ár síðan. Tíminn flýgur og þú alltaf eins og ný fermd :)  Gaman að rifja upp þennan skemmtilega dag. Knús og kossar að norðan.

Kveðja, Magga

Magga (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 16:51

10 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Til hamingju með drenginn ? kveðja frá Ísafirði

Sigrún Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 18:55

11 identicon

Vá hvað ég man eftir þessu öllu. Síðast en ekki síst eftir kósy mánuðunum sem við áttum í fæðingarorlofunum okkar í kjölfarið... Men hvað við gátum tekið upp mörg málefni á mettíma.  Froðufelldum hreinlega stundum yfir kaffinu;-)

 Merkilegt hvað það er stutt síðan en samt svo langt..

 Kristín unnusta sendir ástar og saknaðarkveðjur til afmælisprinsins..Til hamingju með daginn þinn elsku Þór!

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband