Menningarsprengja!

Djammarinn ógurlegiHaldið að frúin sé ekki á leið í höfuðstaðinn. Aftur og nýbúin. Nú barnlaus og til í stuðið. Ætlar að baða sig upp úr menningunni sem boðið verður upp á um helgina og klessast í kaffi hjá vinkonunum, bara dásemd...

Bruna beint af vellinum á tónverkið Drauma eftir stórvin minn Einar Braga Bragason-

draumar

http://saxi.blog.is/blog/saxi/entry/611674/ sem flutt verður í Gvendarbrunni. Ég ætlaði að sjálfsögðu að mæta á frumsýningu verksins sem haldin var í aðveitugöngum Kárahnjúkavirkjunar fyrr í sumar en þar sem ég sleit liðband treysti ég mér ekki til þess að hökta það á hækjunum...

Hlín og GlóinÁ laugardagskvöldið munum við "Hlín mín" rifja upp gamla tíma, smella í okkur nokkrum vel völdum drykkjum, klæða okkur í sparikjóla og syngja "fjólublátt ljós við barinn" í álpappírsklædda þeytara uppi á borði! Að upphitun lokinni munum við vera heiðursgestir á útgáfutónleikum Geirfuglanna og djamma svo með þeim fram á rauða nótt- en Andrinn hennar Hlínsu er einmitt fuglinn trommandi...

Andri minn- þú mátt vegna þessa fara að redda barnapíu fyrir Eygló, við Hlín höfum ekki tíma í það!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef hausverkur heimilar þá verð ég líkast til með heitt á könnunni á sunnudag...ef vill:) Nei, nú fer ég að hringja...mætt til landsins og með ótal síma við hönd.

Elsa (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 00:12

2 identicon

Ohhhhh...............vá hvað ég væri til í að tjútta með ykkur Hlínsu!

Kemur að því

Magga (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband