Viltu setja Bríeti á pásu!

Ekki er óalgengt að heyra Þór segja: "Mamma- viltu setja á pásu, ég er að fara á  klósettið" þegar hann og Bríet horfa á DVD seinnipartinn. Í kvöld var Bríet að lesa heimalesturinn fyrir mig og Þór sat hjá okkur. Hann skipuleggur mig enn inn í sínar klósettferðir þó svo hann gæti vel farið sjálfur að pissa. Ég sá útundan mér að hann var farinn að iða í stólnum og svo sagði hann:

"Mamma- viltu setja Bríeti á pásu, ég þarf að pissa!"

...pása og sælent, það væru kostir sem stundum væri gott að geta beitt á náungann!

Kúluvarparinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snilld:)

Bryndís (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 20:41

2 identicon

Já! Og svo væri gott að hafa delete, fast forward instant replay takka!

Siggi Óla (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 20:53

3 identicon

Þrumuguðinn þinn er snillingur,,, hann gaf mér ruslið í síðustu viku þessi elska þegar hann fór á göngu með fóstrunni Guðrúnu að týna rusl, enda var tunnan mín með gott pláss fyrir svoleiðis,,, knús á ykkur

petrea (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 20:55

4 identicon

já ég myndi líka þiggja lækka takkann hingað heim,,,,,;-)

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband