Skemmtilegur dagur
20.9.2008 | 23:29
Átti frábæran dag með þrenningunni minni. Tókum þátt í sjálfboðavinnu hjá Alcoa sem byggist upp á því að unnin eru verkefni í þágu samfélagsins. Unnið var á fjórum stöðum í fjórðungnum en við vorum staðsett á Reyðarfirði þar sem lagaðir voru göngustígar og fleira. Mitt hlutverk í dag var að mynda í gríð og erg, ekkert leiðinlegt verkefni í haustlitunum...
Læt nokkrar myndir frá deginum fylgja með, er sérstaklega ánægð með myndina af Magna (hundinum)- hún hefði verið fullkomin einu sekúndubroti seinna þannig að skottið hefði allt verið inn á...
Athugasemdir
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 22.9.2008 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.