Skíðamennska

Eins og fram kom í bloggfærslu minni um hvernig þriggja barna mæður ættu helst ekki að haga sér- þá er fjölskyldan með stór áform varðandi skíðasportið. Nú er svo komið að allir eru komnir með græjur, nema ég...

Generalprufa Þórs fyrir Oddskarðið, sem var jafnframt hans fyrsta ferð á skíðum fór fram á dögunum. Ekki datt mér í hug að þessir tveggja ára brauðfætur stæðu sig eins vel og raun bar vitni...

...verð bara að skella inn myndum af verðandi heimsmeistara í bruni! Þrumuguðinn Þór!

Þór á ekki skíðagleraugu......en það kemur ekki að sök......undrabarn?Með átrúnaðargoðinu- BríetiGræjulausa móðirin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Stafdalur er málið

Einar Bragi Bragason., 22.2.2008 kl. 11:37

2 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Frábærar myndir Bóel! Mig langar skyndilega á skiði í björtu veðri og með kakó á brúsa! Allavega langar mig í kakó....

Ylfa Mist Helgadóttir, 22.2.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband