Alls engin mynd af bleikum dúett...
4.11.2009 | 21:49
Jólahlaðborð eftir nokkra daga. Ég er alvarlega að hugsa um að bjóða ósýnilega vini mínum með mér...
Hér hafði ég hug á því að setja inn mynd af mér og Jóhönnu Seljan, en við stigum á stokk í bleikum samfestingum síðan 1960 á dögunum og sungum dúett við mikla kátínu nærstaddra. En, eins og alltaf verið þið bara að ímynda ykkur myndirnar. Gaman að því...
Athugasemdir
Sástu ekki myndina um Three Amigos! Þeir skutu ósýnilega manninn. Vona að það hafi ekki verið vinur þinn... :-/
Iss, ég get vel séð ykkur fyrir mér en það er verra með sönginn, þú verður að setja hann inn á YouTube til að allir geti notið herlegheitanna.
Knúsimús!
Hallan (IP-tala skráð) 6.11.2009 kl. 11:28
Jesús jú- ætli það hafi ekki bara verið kærastinn minn. Allavega hef ég lítið séð af honum síðustu daga, vona að hann skili sér fyrir hlaðborð!
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 6.11.2009 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.