Fjögurra ára þrumuguð

Ungbarnið mitt er fjögurra ára í dag. Örverpið sem jafnframt ber titilinn Þrumuguðinn í vina og fjölskylduhóp...

"Heitir hann bara Þór" spurði almenningur gjarnan í forundran yfir almennri nísku foreldranna í nafngiftum. Það þótti ræfilslegt með afbrigðum. Aftur á móti þykir mér þriggja stafa nafnið RISAstórt, alveg eins og hann sjálfur þó smár sé...

...kúturinn sá myndi leikandi stjórna heilli herdeild.  Ákveðinn, veit hvað hann vill en þykir þó fátt bera en að kúra í hlýju fangi og segir þá gjarnan eitthvað voða fallegt...

Þór; "Ég elska þig mamma, en líka Tönju- því hún er svvvvvo mikið krútt"

Elsku kúturinn okkar, innilega til hamingju með daginn þinn- hibbhibbhúrra! Mamma, Almar Blær, Bríet og að sjálfsögðu Stúfur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Krúttibollan! Knús á línuna og sérstakar kveðjur til afmælisbarnsins :-)

Halla K (IP-tala skráð) 3.9.2009 kl. 22:47

2 identicon

 Svo mikið rétt með það að nafnið er  alveg í takt við karakter unga mannsins..;-)

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband