Meiri djöfuls' vitleysan

Þetta er nú meiri andskotans, djöfulsins vitleysan í þér hefði pabbi sagt við mig núna. Var að koma úr sjósundi í annað skipti með Guðnýju Björgu sjógúrú og hinum stelpunum. Það var ÓGEÐSLEGT, ÓGEÐSLEGT, ÓGEÐSLEGT!! Fannst það milklu skárra síðast, en núna- ji minn einasti eini...

Það er auðvitað eins og það sé október-veður hér á austurhjara veraldar þessa dagana, rok og ekki mikill lofthiti. En út í fórum við og kræktum meira að segja með okkur nýjum kandídat!

Það er viðbjóður að vaða út í en herlegheitin byrja samt ekki fyrr en maður er komin upp fyrir mitti. Það verður ekki mögulegt að anda eðlilega og maður hálf missir andann. Ég næ hvorki að venjast kuldanum eða normal öndun. Vorum ekki lengi útí í þetta skiptið og skelltum okkur beint í vaðlaugina á Mjóeyri að "sundi" loknu. Með naglakul á tánum og sumar hverjar með blóðlausa putta...

En þetta ku jú vera allra meina bót, sogæðakerfið mun blómstra sem aldrei fyrr og appelsínuhúð- hvað er nú það???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Djö.... harka er þetta í þér!

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 19.6.2009 kl. 09:24

2 identicon

Dugnaður í þér, hugsa að ég myndi ekki hætta mér í þetta, þá svo að mig dauðlangi ;o)

Rannveig (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 15:09

3 identicon

þó svo átti þetta nú að vera ;o)

Rannveig (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 15:10

4 identicon

Ánægð með þig, algjört hörkutól ;)

Elín Rut (Ella) (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband