Inntökupróf í helvíti!

10 kílómertrar? Nei

Maraþon? Nei

Maraþon í 37 stiga hita? Nei

Fjallganga með 6 vikna vistir á bakinu? Nei

Að keyra blindandi aftur á bak hringferð um landið? Nei

Nákvæmlega. Held að það sé EKKERT erfiðara, ógerlegra eða viðbjóðslegra en að vera einn á barnavaktinni í eigin veikindum. Það er beinlínis ekki hægt. Nú ligg ég- gersamlega bakk í mínum árlegu marz-veikindum. Kinn- ennisholu "tannpínu" verkjum, sem fylgir krónískur svimi vegna þrýstings í höfði. Það lekur stanslaust úr augunum á mér, ég er með hita, beinverki og ljósfælni. Enda líklega á penesilíni eins og alltaf. Er þó hálf smeik við doksa þar sem hann hótar mér alltaf "aðgerð" því vandinn er krónískur- hótar mér að skola eða bora vandann út. Hljómar illa!

En það væri eitt og sér gerlegt að yfirstíga eigin veikindi ef ekki væri einstæða barnavikan samfarandi. Það segir sig sjálft að þegar maður stendur, og varla liggur undir sjálfum sér þá er eftirfarandi rútína með öllu ógerleg:

Klukkan slær fjögur- en frá þeim tíma og fram til hálf níu þarf eftirfarandi að gerast til þess að málin gangi upp:

  • Börnin sótt út um allan bæ (amma Jórunn bjargaði mér þar sem bíllinn minn er fastur í stæðinu, og nota bene, það er líkelga verkefni klukkutímans að troða stíl í rassinn á sér og fara út og moka)
  • Gefa að borða, allavega tvisvar fram að kvöldmat
  • Taka á móti vinkonum í heimsókn til dóttlunnar
  • Hugsa fyrir kvöldmat
  • Leysa deilur milli barnaskara ca einu sinni á hálftímafresti
  • Skeina þrumuguðnum reglulega
  • Setja í þvottavél
  • Taka úr þvottavél
  • Elda
  • Baða
  • Láta læra heima
  • Hátta
  • Bursta
  • Koma börnum í ból
  • Líklega 37 önnur atriði sem ég man ekki núna í ó-gleði minni!

    Ekki alveg jafn hress í dag!

Þessi listi er ærinn fyrir fullfrískan einstakling. En prófraun fyrir inngöngu í helvíti fyrir þann sem er mun nær dauða en lífi af flensu! Í ofanálag er frí í skólanum á morgun og einnig í leikskólanum á föstudaginn, fjandinn megi eiga það! Verkefni morgundagsins er að heyra í Guði almáttugum og biðja hann um að stofna stuðningsklúbb einstæðra mæðra í allskyns þrengingum! Vona svo sannarlega að það virki...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hringd'í Stínu og láttu hana hjálpa þér.

Hlín mín (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 17:24

2 identicon

þú átt alla mína samúð,, ef ég væri ekki alveg að drepast sjálf þá kæmi ég til þín garmurinn minn,,, þetta ER skelfilegt ástand,,,  Doksi er ekkert að plata, það þarf örugglega að skola eitthvað objakk út,,,  gangi þér vel

petrea (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 17:31

3 identicon

Kræst..hef lent í álíka og hélt hreinlega að ég myndi ekki telja fleiri daga...maður á aldrei meira bágt en í svona stöðu. Oj.

Rassastílabaráttukveðjur héðan yfir til þín gullið mitt..

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 17:32

4 identicon

Ég vona að veikindin verði yfirstaðin fljótlega,
þetta er náttúrulega bara ógeð og ósanngirni!

Sigríður Inga (hans Valda) (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 10:38

5 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

færslan þín sannfærir mig algjörlega um það að hárrétt ákvörðun hafi verið tekin þegar bóndinn var sendur í "klippingu" eftir fæðingu þriðja drengsins.....

Ylfa Mist Helgadóttir, 26.2.2009 kl. 23:23

6 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Púff, nákvæmlega! Án gullanna minna gæti ég ekki verið en að mig langi í fleiri- njetskí! Þar sem ég er þó enn á blússandi barneignaaldri eru vinkonurnar ansi duglegar að unga út og er ég iðulega spurð þegar ég er að "máta" krílin: "Guð, klingir ekki í þér"...

..."Uuuu, nei" svara ég. Finnst þessi kríli hvert öðru yndislegri en að kirkjuklukkurnar í mér fari af stað, nei! Pakkinn minn er dásamlegur, en nægur!

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 26.2.2009 kl. 23:30

7 identicon

Þú hefur alla mína samúð gullið mitt......er sjálf að ganga í gegnum Kinn- ennisholu "tannpínu" verkina... hef´reyndar kallin til að sinna börnunum á meðan (því hér hefur sú stutta sjálf verið veik á meðan).

Drífðu þig bara í að fá pensilínið...vertu ekkert að pína þig neitt að óþörfu því þetta fer ekkert án þess.

Hitti eina frænku okkar um daginn sem sagði ennisholuvesenið vera "Landaættarsyndrom"

Erla Dögg (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 14:53

8 identicon

Skelltu þér í aðgerð þetta er miklu minna mál en maður heldur og manni líður svo miklu betur á eftir ! Í alvöru talað fó í þetta fyrir ári og lífið wer allt annað þennan veturinn þrátt fyrir að hafa fengið kvef og alles.

láttu þér batna

Linda Ósk

Linda Ósk Mýringur (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband