Mæðgur í borgarferð...

Mæðgur eru á leið í borgarferð. Fljúgum yfir landið þvert og endilangt á mánudaginn og heim aftur á fimmtudaginn. Ætlum að gera allt sem okkur finnst skemmtilegt. Fara í bíó, sund, borða óhollan mat, heimsækja vinkonur okkar og hvað annað sem tilfellur. Er einhver memm þarna fyrir sunnan?

Lofum að vera skemmtilegar...Bríetin mín

Hlökkum til að sjá ykkur...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefði verið fyrst að bjóða íste og melónu ef ekki væri fyrir íbúðaskipti við fransmenn. Förum af landinu á mánudag. En njótið ykkar í borginni. Mun síðan hringja við allra fyrsta tækifæri þegar heim verður komið. Eigum við að hafa spjallið á frönsku? Ble...E

Elsa (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 22:55

2 Smámynd: Adda bloggar

Glitter Graphics



Adda bloggar, 26.7.2008 kl. 23:52

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Komdu nú endilega við á Umfó - ég kem til vinnu aftur á morgun, mánudag. Siggi verður reyndar farinn í frí - en við getum tekið létt spjall........

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 27.7.2008 kl. 14:31

4 identicon

Við skulum reyna að ná smá memmi á morgun, erhaggi?

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 19:47

5 identicon

Hæ hó - alla leið frá Kína.  Lítið um kaffisopann í Rima númer sex þegar húsfreyjan er í Peking! Lenti í morgun eftir ógnarlangt ferðalag. Heitt, heitt, heitt en skemmtilega lítið ber á menguninni sem allir eru búnir að argafjargast yfir. Hún rigndi bara burt í gærdag :-)  Bara svona fyrir mig.

Áfram Ísland!!

Hallan (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband