Sjö ára Bríetarbarn

Bríetin mín er sjö ára í dag. Sem sagt, RISAstór. Komin með fullan munn af fullorðinstönnum, gengur í annan bekk og spilar á gítar. Tíminn líður ógnarhratt. Finnst ekki svo langt síðan að hún skaust á ógnarhraða í þennan heim, en í það tók hún sér aðeins rúman klukkutíma með öllu. Hefur verið alger töffari frá fyrstu mínútu og verður það vonandi alla tíð...

Elsku krúsin okkar, til hamingju með daginn. Þess óska mamma, Almar Blær og Þór


Í skóla á ný...

Úff. Var búin að steingleyma því hvað það er erfitt að vera í skóla. Sat ásamt fleirum á endurmenntunarnámskeiði í vinnunni í allan dag. Ég er þreyttari eftir að sitja og meðtaka upplýsingar þennan eina dag heldur en eftir heila vinnuviku!

 


Þokkalegur kokkur!

Tel mig nú bara vera ágætiskokk alveg hreint. Í heiminum ríkir ekki samhljómur og meira að segja ekki innan heimilisins...

Þór; Mamma. Hvenær ætlar þú eiginlega að gera svona töflu eins og er í leikskólanum?

Ég; Hvernig tafla er það?

Þór; Æji, svona matartafla. Þar sem kennarinn krossar við hvort börnin borða þokkalega eða vel

Ég; Ég held að það kæmi nú ekkert sérstaklega vel út fyrir þig ástin mín, þú ert nú ekkert rosalega duglegur að borða matinn þinn í kvöldmatnum, þó svo að þú borðir alltaf vel í leikskólanum

Þór; Það er bara af því að þú eldar ekki eins góðan mat og matráðskonan í leikskólanum!

...noh!


Bubbi Morthens skiptir um starfsvettvang

Kærkomið helgarfrí. Kærkomnir gormar í húsi...

Íhugum að fara í menningarferð mikla í Egilsstaði á morgun. Stórmarkaðsferð og kaffihús, en það er alveg gasalega vinsælt og smart þegar maður er 4-6 ára. Heila málið...

Þór var með síma í kvöld, Bubba byggir síma í eigin eigu. Lét hann eitthvað illa af stjórn, Bubbi sagði ekki neitt nema þegar honum hentaði- þrátt fyrir að ýtt væri á hina ýmsu takka...

Þór; Ohhh

Ég; Hvað er Bubbi byggir eitthvað óþægur við þig?

Þór; Þetta er ekki Bubbi byggir í þessum síma. Þetta er Bubbi Morthens!

 


Skondnar umræður...

Fyrri umræða;

Staður; Kvölmatarborðið

Stund; í liðinni viku

Persónur og leikendur; Móðir, Bríet og Þór

Þór; Mamma, ert þú kærastan hans pabba?

Ég; Nei, það er Rebekka

Þór; Ó, já

Bríet; Ég er með tvo kærasta!

Ég; Noh. Hverjir eru það?

Bríet; Hlynur og Hilmir. Eða sko, ég er þeirra- en þeir eru ekki mínir...

...já, þetta er ekki einfaldur málaflokkur, það vita allir!

 

Seinni umræða;

Staður; Í bílnum

Stund; Í gær

Persónur og leikendur; þeir sömu og í þeirri fyrri

Persónur og leikendur eru í leik þess efnis að ungviðið segir fyrsta staf á orði og hinir tveir eiga að giska á hvaða orð er. Úldin skata bar á borð...

Ég; Ummm, mannstu Bríet á Þorláksmessu í fyrra, þá smakkaðir þú skötu. Ég ELLLLSKA skötu!

Bríet; Já, skötuna sem þú veiddir í Breiðdalsánni í fyrra sumar. Eða, nei- þú festir bara krókinn í botninum!

...jújú. Ég er enginn veiðimaður. Ósagt skal látið hvort að úldin skata syndir um í Breiðdalsánni en ég fór þó óneitanlega þangað í laxveiði í fyrra. Það eina sem ég áorkaði var að botnfesta þannig að Jói bróðir þurfti ítrekað að koma mér til bjargar. En ekki þarf að þræta um dásamleika skötunnar, er farin að telja niður í Þorlák...

Bríet varð að sjálfsögðu að prófaNei, alls ekki- þessi er sviðsett!Flottastur!

Skatan úldna komin á land!


Alls engin mynd af bleikum dúett...

Jólahlaðborð eftir nokkra daga. Ég er alvarlega að hugsa um að bjóða ósýnilega vini mínum með mér...

Hér hafði ég hug á því að setja inn mynd af mér og Jóhönnu Seljan, en við stigum á stokk í bleikum samfestingum síðan 1960 á dögunum og sungum dúett við mikla kátínu nærstaddra. En, eins og alltaf verið þið bara að ímynda ykkur myndirnar. Gaman að því...

 


Skapandi straujárn

"Krissa mín, þú ert ekki alveg eins og fólk er flest," sagði vinkona mín við mig í dag- þegar ég sagði henni að ég fengi alltaf heimsins bestu hugmyndir þegar ég er að strauja. Það er eitthvað svo róandi...

Ef ég ætti að telja húsverk upp í sæti eftir "skemmtileika", þá myndu öll þvottamál klárlega tróna á toppnum! Setja í vél, taka úr vél, hengja á snúru og brjóta saman, það er góð skemmtanSmile. Ég næ svo einhverju mögnuðu sambandi við straujárnið, hugurinn fer á flakk. Fékk um helgina hugmynd að bók í hausinn við iðjuna. Þannig að, ef ég vinn barnabókmenntaverðlaunin einn daginn þá þakka ég straujárninu mínu í ræðunni...

EINMITT: Óska ykkur bara til hamingju með þetta! Hér ætlaði ég að hafa mynd en NEI, hvað er að þessu dæmi? Skipti um bloggvettvang fyrir næstu færslu, það er næsta víst!


Brunaferli Þórs

Í Alcoa er allt unnið samkvæmt fyrirfram skilgreindum ferlum. Frá upphafi til enda. Leið eins og sonur minn 4ra ára væri að uppfræða mig um eitt slíkt í morgun;

Þór; "Ef það kviknar í einu húsi þá koma allir. Slökkviliðið kemur til þess að slökkva eldinn. Löggan kemur ef það þarf að taka einhvern fastan og presturinn kemur til þess að grafa einhverja."

...semsagt. Allt undir kontról- allt afgreitt á staðnum. Pakkatilboð og málið er steindautt!

 


Afburðagreind?

Á dögunum var PLAYMOleikur í Tungu-stofu- eins og svo oft áður. PLAYMOpabbinn var á útleið en gaf sér ómældan tíma til þess að kyssa PLAYMOmömmuna bless...

Ég; "Vá, voðalega kyssast þau mikið!"

Afkvæmi mitt;  "Já. Það er mjög hollt að kyssast"

...ok. Það er morgunljóst að börnin mín eru afburðagreind. Sjálf íhuga ég það iðulega að gerast atvinnukyssari!


Mega-dóninn hann Lúlli rokkari!

Meiri bloggþörfin þessa dagana! En, gleymdi að segja frá því hve við erum með ótrúlega dónalegan grallara í heimsókn hjá okkur um helgina...

Lúlli leikskólabangsi kom með Þór heim í gær. Hann verður okkar gestur um helgina, fylgir okkur í því sem við brösum. Ekkert með það. Hann var voða glaður að komast úr pokanum sem hann var í á snaganum hans Þórs. Við stöldruðum stutt við heima því við þurftum að fara nánast beint á tónfundinn sem Bríet var að spila á (sjá gærdagsblogg)...

...Lúlli var hljóður og kurteis á tónleikunum sjálfum en þegar út í bíl var komið tók annað við...

Í bílnum...

Mamma: "Jæja ástin mín, þetta var nú aldeilis flott hjá þér" (beint til Bríetar, en hún spilaði Glettinn máninn ein og óstudd, algerlega án þess að ruglast. Fannst ykkur það ekki?"

Þór: "Nei, það fannst mér ekki! Mér fannst Jökull bara flottur." (en Jökull er nemandi sem er lengra kominn í náminu og farinn að spila heillöng rokklög á rafmagnsgítar)

...þegar þarna er komið sögu er allt farið í uppnám, Bríet hágrætur vegna leiðindadóma samferðafélaga síns. Ég reyndi að malda í móinn og snúa atburðarásinni...

Mamma: "Svona segir maður ekki, þetta var alveg glæsilegt hjá Bríeti- ROSALEGA flott!"

Þór: "Þetta var ekki ég sem sagði þetta, heldur Lúlli. Hann vill bara hlusta á rokk!"

Mamma: "Mér finnst Lúlli nú bara dóni!"

Þór: "Ég tala bara við Lúlla, segi honum að hann eigi ekki að segja svona.

...já. Lúlli rokkari. Það er svo sem vel- okkur finnst rokkarar flottir! En dónalegir rokkarar, nei takk...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband